Terms of service
Traxion.is er verslun sem selur rafmagnshjól, -fjórhjól, -krossara og fylgihluti fyrir börn.
G&V ehf.
Kt. 4603181220
VSK nr. 130943
Kinnargötu 22
210 Garðabær
s. 6963501
traxion@traxion.is
Skilareglur / Vefverslun
Skilmálar þessir gilda um vörukaup í vefverslun Traxion.is:
Verð á sendingum reiknast skv. verðskrá Dropp eða Póstsins.
Heðfbundinn afhendingartími eru 2-5 virkir dagar frá því að pöntun er gerð.
Hægt er að velja að sækja vörur til söluaðila. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu í tölvupósti þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Traxion.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að vörur séu ónotaðar og þeim skilað í upprunalegu ástandi ásamt kvittun. Fresturinn miðast við að vara sé komin aftur í hendur seljanda innan 14 daga. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að seljandi hefur móttekið vöruna. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Galli
Við afhendingu á vöru ber kaupendum að rannsaka vöru á þann hátt sem góð venja stendur til. Þegar 6 mánuðir eru liðnir frá móttöku vöru verður ekki hægt að skila gölluðum vörum enda á framleiðslugalli að vera kominn fram á þeim tíma. Framvísa þarf reikningi til staðfestingar að vara hafi verið keypt hjá Traxion. Senda þarf mynd af vöru ásamt staðfestingu á greiðslu á traxion@traxion.is. Öllum skilaboðum er svarað innan 7 virkra daga.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara.
Traxion áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Skattar og gjöld
Öll verð í vefverslun eru reiknuð með virðisaukaskatti.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Um vörukaup gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Aðrar upplýsingar
Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Garðarbær, 16.4.2026