Refund policy

Traxion.is er verslun sem selur rafmagnshjól, -fjórhjól, -krossara og fylgihluti fyrir börn.

G&V ehf. 

Kt. 4603181220
VSK nr. 130943

Kinnargötu 22
210 Garðabær
s. 6963501
traxion@traxion.is

Skilareglur / Vefverslun

Skilmálar þessir gilda um vörukaup í vefverslun Traxion.is:

Verð á sendingum reiknast skv. verðskrá Dropp eða Póstsins. 

Heðfbundinn afhendingartími eru 2-5 virkir dagar frá því að pöntun er gerð.  

Hægt er að velja að sækja vörur til söluaðila. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu í tölvupósti þegar varan er tilbúin til afhendingar. 

Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnarTraxion.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að vörur séu ónotaðar og þeim skilað í upprunalegu ástandi ásamt kvittun.  Fresturinn miðast við að vara sé komin aftur í hendur seljanda innan 14 daga. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að seljandi hefur móttekið vöruna. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Galli

Við afhendingu á vöru ber kaupendum að rannsaka vöru á þann hátt sem góð venja stendur til. Þegar 6 mánuðir eru liðnir frá móttöku vöru verður ekki hægt að skila gölluðum vörum enda á framleiðslugalli að vera kominn fram á þeim tíma. Framvísa þarf reikningi til staðfestingar að vara hafi verið keypt hjá Traxion. Senda þarf mynd af vöru ásamt staðfestingu á greiðslu á traxion@traxion.is. Öllum skilaboðum er svarað innan 7 virkra daga.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara.

Traxion áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Skattar og gjöld

Öll verð í vefverslun eru reiknuð með virðisaukaskatti.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um vörukaup gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000.

Aðrar upplýsingar

Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

 

Garðarbær, 16.4.2026