Traxion sérhæfir sig í rafknúnum afþreyingartækjum og búnaði sem sameinar gæði, skemmtun og áreiðanleika. Við erum stöðugt að stækka vöruúrvalið okkar og leggjum áherslu á að bjóða hagstæð verð án þess að gefa eftir gæði.

Við viljum ekki bara selja vörur heldur einnig veita góða þjónustu, varahluti og ráðgjöf sem hjálpar til við að viðhalda tækjunum.

Markmið okkar er einfalt — að bjóða áreiðanlegar vörur, góð verð og þjónustu sem viðskiptavinir geta treyst.

Traxion — gæði, þjónusta og skemmtun á hagstæðu verði.

Frequently asked questions

Er hægt að fá varahluti fyrir hjólin?

Já. Traxion er í beinum samskiptum við framleiðanda hjólanna og er hægt að panta alla varahluti í hjólin.

Er hægt að máta hjálmana?

Já. Best er að hringja í síma 787-7700 og finna tíma til að koma og skoða mótorhjólahjálmana.

Af hverju eru jafnvægishjólin ódýrari en annars staðar?

Markmið Traxion er að lágmarka allan kostnað t.d. með lítill yfirbyggingu. Við erum aðeins með netverslun og kaupum hjólin beint frá framleiðanda. Þannig getum við haldið verðum mjög samkeppnishæfum og jafnvel þeim lægstu á markaði.

Hvaða aldri henta jafnvægishjólin?

12" hjólin eru fyrir 2-6 ára og 16" hjólin eru fyrir 6-10 ára. Bæði hjólin bera allt að 50 kg. Hjólin eru með þremur hraðastillingum (7, 13 og 19 km/h.)

Hver er sendingarkostnaður?

Það kostar ekkert að fá heimsendingu innan höfuðborgarsvæðisins. Utan höfuðborgarsvæðisins kostar 5.990 kr. að fá vörur heimsendar.